iFolder-þjónusta
Ókeypis reynsluáskrift í þrjá mánuði frá skráningu
Gjald vegna ársleyfis fer ekki fram fyrr en þremur mánuðum eftir skráningu, uppsögn sendist á uppsogn@skyrr.is
Skýrr veitir nú svonefnda iFolder-þjónustu sem gerir notendum kleift að nálgast mikilvæg skjöl og vinnugögn gegnum Internetið, hvar og hvenær sem er.
iFolder-þjónustan er óháð staðsetningu notenda, hvort heldur heima, við vinnu eða á ferð og flugi. iFolder-þjónustan er einnig óháð hverskonar hugbúnaði og vélbúnaði í MS Windows umhverfi.
Gögn og skjöl sem notendur geyma í sérstakri iFolder-möppu á vinnustað eru sjálfkrafa spegluð og uppfærð í miðlægri gagnageymslu Skýrr og þar er hægt að nálgast skjölin þegar hentar, hvort heldur gegnum tölvur á staðarneti eða hefðbundinn vafra (browser) í öllum tölvum með tengingu við Internetið.
iFolder-þjónustan byggir á öruggri miðlun upplýsinga og afrit eru tekin af gögnum daglega. iFolder-þjónustan er hraðvirk, þægileg og hagkvæm. Aðgangsstýring er einföld og örugg.
Skýrr býður nú ársáskrift að iFolder með 1,5 GB vinnslu- og geymslurými.
Svona notarðu iFolder-þjónustu Skýrr:
1. Veldu "Kaup á iFolder áskrift".
2. Náðu í iFolder-búnað (client) með því að velja "Sækja iFolder-búnaðinn".
· Settu iFolder-búnaðinn upp á viðeigandi tölvu(m) á vinnustað -- eða heimili.
· Skráðu þig inn og tryggðu að stillingar henti þér og þínum þörfum (staðsetning iFolder-möppu í tölvu, ofl).
· Flýtivísir (shortcut) sem vísar á iFolder-möppuna þína er settur á skjáborðið (desktop).
· Færðu þau skjöl sem hentar í iFolder-möppuna og þau eru sjálfkrafa uppfærð á iFolder-miðlara Skýrr.
· Settu upp iFolder-búnaðinn á þeim tölvum sem þú notar til að nálgast miðlægu iFolder-möppuna þína.
Notaðu vafra til að nálgast iFolder-skjöl ef þú ert að nota tölvu sem ekki hefur iFolder-búnaðinn uppsettan.
Nánari upplýsingar veitir Þjónustuborð Skýrr og Davíð Þór Kristjánsson sölustjóri í síma 569-5100
Þú getur líka sent póst á rl@skyrr.is



