Áskrift
iFolder-þjónusta
Skýrr veitir nú svonefnda iFolder-þjónustu sem gerir notendum kleift að nálgast mikilvæg skjöl og vinnugögn gegnum Internetið, hvar og hvenær sem er.
iFolder-þjónustan er óháð staðsetningu notenda, hvort heldur heima, við vinnu eða á ferð og flugi. iFolder-þjónustan er einnig óháð hverskonar hugbúnaði og vélbúnaði í MS Windows umhverfi.
Gögn og skjöl sem notendur geyma í sérstakri iFolder-möppu á vinnustað eru sjálfkrafa spegluð og uppfærð í miðlægri gagnageymslu Skýrr og þar er hægt að nálgast skjölin þegar hentar, hvort heldur gegnum tölvur á staðarneti eða hefðbundinn vafra (browser) í öllum tölvum með tengingu við Internetið.
iFolder-þjónustan byggir á öruggri miðlun upplýsinga og afrit eru tekin af gögnum daglega. iFolder-þjónustan er hraðvirk, þægileg og hagkvæm. Aðgangsstýring er einföld og örugg.
Skýrr býður nú fría iFolder ársáskrift með 500 MB vinnslu- og geymslurými. Hægt er svo að kaupa 1 GB eða meira eftir þörfum.
Uppsögn sendist á uppsogn@skyrr.is
Nánari upplýsingar veitir Þjónustuborð Skýrr 569-5100



