Aðgangur með iFolder-Netdrif

Aðgangur með iFolder-Netdrif búnaði

iFolder-Netdrif er þjónusta sem veitir aðgang að iFolder gögnum án þess að öll gögnin séu afrituð frá iFolder miðlara yfir á vinnustöð notandans. Notandinn sér á vinnustöð sinni, iFolder gögnin á miðlara sem viðbótar drifbókstaf. Notandinn vinnur með gögnin, opnar og vistar skrár alveg eins og um disk á vinnustöð eða netmiðlara sé að ræða. Um þessi gögn og gagnaflutningana gilda að öðru leyti sömu reglur og þegar um venjulegan iFolder-búnað er að ræða.

Athugið að framkvæma fyrst grunnuppsetningu á iFolder-búnaðinum skv. lið 2. á aðalvalmynd áður uppsetning á Netdrifi fer fram. ef iFolder-búnaðurinn er þegar uppsettur á viðkomandi vinnustöð þá er óhætt að halda áfram með uppsetninguna skv. neðangreindum leiðbeiningum.

1. Eftir að smellt er á hnappinn hér að neðan þá veljið að vista uppsetningarskránna á vinnustöðinni.
2. Finnið uppsetningarskránna þar sem valið var að vista hana.
3. Keyrið uppsetningarskránna t.d. með því að tvísmella á hana.
4. Athugið að best er fylgja uppsetningar leiðbeiningunum án breytinga
5. Eftir að uppsetningu er lokið er forritið ræst: Start-Programs-Netdrive-Netdrive
6. Í glugganum sem þá birtist er valið "New Site"
6. Í svæðið "Enter the name for your new site" er sett sjáfvalið gildi s.s. iFolder Netdrif
7. Í svæðið "Enter the site address/URL" setjið https://ifolder.skyrr.is
8. Í svæðið "Server Type" veljið iFolder
9. Í svæðið "Drive" veljið þann drifbóksataf sem þið viljið nota
10. Takið hakið af "Anonymous/Public Logon"
11. Smellið á "Connect"
12. Sláið inn ykkar iFolder notendanafn, lykilorð og "Pass Phrase"
13. Innan stundar ætti að birtast nýr drifbókstafur
14. Nú er hægt að vinna beint með gögnin á iFolder-Netdrifi