Sækja iFolder-búnaðinn

Aðgangur með iFolder búnaði

iFolder er þjónusta sem veitir aðgang að iFolder gögnum hvar og hvenær sem er.

Kerfiskröfur:

iFolder búnaður er studdur á eftirfarandi stýrikerfum:
-MacOS X 10.3

-Novell Linux Desktop 9

-Windows 2000 Professional

-Windows XP Pro/Home

-Windows Vista

Annað:
-Virk Internet tenging

1. Eftir að smellt er á hnappinn hér að neðan þá veljið að vista uppsetningarskránna á vinnustöðinni.
2. Finnið uppsetningarskránna þar sem valið var að vista hana.
3. Keyrið uppsetningarskránna t.d. með því að tvísmella á hana.
4. Athugið að best er fylgja uppsetningar leiðbeiningunum án breytinga
5. Eftir að uppsetningu er lokið þarf að endurræsa vinnustöðina
6. Forritið ræsist sjálfkrafa eftir endurræsingu
7. Sláið inn notendanafn (User ID) og lykilorð (Password)
8. Veljið iFolder staðsetningu á hörðum disk
-Þau gögn sem þar eru verða vistuð á iFolder miðlara þegar tenging er orðin virk
-Athugið að sú mappa sem valin er fyrir iFolder má ekki vera sameiginleg mappa (Share), hvorki á neti né á vinnustöð
9. Veljið "Passphrase" sem eru lykill til dulritunar á gögnum á miðlara
10. Kynnið ykkur nánari leiðbeiningar og upplýsingar um notkun iFolder á http://ifolder.skyrr.is